Þorrablót
Á þorrablóti eru skemmtiatriði sem eru búin til af þorrablótsnefnd.
Borðaður er þorramatur og svo er ball sem oftast hefur verið með
íslenskri hljómsveit. Það er öllum val að vera í þorrablótsnefnd, það
geta allir verið með. Nefndina skipa 8-10 félagsmenn.

Karladagur

Þetta er dagur sem karlarnir fara og hafa góðan dag saman. Það er
skipað í nefnd sem skipuleggur hvað gera á. Hún er skipuð af 3-4
félagsmönnum.

Konudagurinn

Þennan dag er farið í óvissuferð. Það er nefnd sem skipuleggur hvað
gera skal og hana skipa 3-4 félagskonur.

Öskudagsskemmtun

Fjölskylduskemmtun þar sem sleginn er kötturinn úr tunnunni í búningum
með öllu tilheyrandi.

Páskabingó

Alltaf spennandi vinningar. Öll fjölskyldan getur komið saman og spilað bingó.

17. júní

Haldið er upp á þjóðhátíðardaginn með pompi og prakt.
Fjölskylduskemmtun með ýmsum uppákomum. Um kvöldið er svo Loftið opið
fyrir eldri börnin.

Verslunarmannahelgargrill

Við komum saman í Catrinelund/Katrinelund, þar er aðstaða til að
grilla og leika sér. Allir koma með sitt til að borða og drekka en ÍFS
sér um að koma með kol og annað sem þarf til að koma upp grilli. Um
kvöldið er svo Loftið opið.

Haustfagnaður

Skemmtun sem klakamótsfarar sjá alfarið um. Þar er skemmtun og leikir
fyrir börn og fullorðna. Þetta er líka kynning á félagsstarfinu fyrir
nýja félagsmenn. Um kvöldið er svo rosaleg skemmtun á Loftinu fyrir
fullorðna.

Klakamót



Aðventukaffi
Er haldið fyrsta sunnudag í aðventu. Þá komum við saman á Loftinu,
allir koma með einhverjar kræsingar sem eru svo settar saman á
hlaðborð sem allir geta svo gætt sé á. Skemmtileg stund til að hitta
alla í jólaskapi.

Skötuveisla

Á þorláksmessu eldum við skötu og saltfisk að íslenskum sið, bara til
að koma okkur öllum í jólaskap.

Jólaball

Er haldið á milli jóla og nýárs, þar sem jólasveinar mæta
í heimsókn og boðið er upp á heitt kakó og kaffi en félagsmenn sjálfir sjá um að
koma með kræsingar á kökuborðið.

Barnaleikfimi

Á veturna, höfum við leikfimi fyrir börn einu sinni í viku . Þetta fer
allt fram innanhús nema annað sé ákveðið. Foreldrar mæta með börnum
sínum og hjálpa til með að setja upp og taka saman tæki og einnig til
að hjálpa leikina. Það eru settar upp stöðvar og svo er frjáls leikur.

Körfubolti

Á veturna er karla og kvenna körfubolti einu sinni í viku innanhús.
Konur og karlar hafa sér tíma. Allir félagsmenn eru velkomnir.

Badminton

Öllum félagsmönnum er velkomið að koma í batminton og spila. Þetta
gæti verið gaman fyrir fjölskylduna að gera eitthvað saman.