Íslendingafélagið Í Sønderborg
ÍFS er virkt félag með öfluga starfsemi. Þar er að finna eitthvað fyrir fólk á öllum aldri.
Okkar helstu viðburðir eru þorrablót, karladagur, konudagurinn, barnaleikfimi, körfuboltakarla, körfuboltakvenna, öskudagsskemmtun, páskabingó, 17 júní, verslunarmannahelgargrill, haustfagnaður, skautaferð, aðventukaffi, skötuveisla, jólamessa og jólaball. Svo er margt annað sem við gerum svo sem bíó, spilakvöld, jólaföndur og margt fleira.
Öllum er velkomið að koma með hugmynd af því hvað hægt er að gera.
ÍFS hefur verið starfandi í fjölda mörg ár svo lengi sem elstu menn muna.
Félagsgjaldið er 100 dkr fyrir 18 ára og eldri og frítt fyrir börn og greiðist það annað hvort inn á banka eða til gjaldkera, ekki eru sendir út gíróseðlar fyrir félagsgjaldinu. Starfsárið er frá 15 febrúar ár hvert.

