Loftið
Loftið er salur sem ÍFS leigir ásamt TF og FFS. Salurinn er við Ringridervej 13 í Sønderborg. Þar eru haldnar skemmtanir svo sem bíó, bjórkvöld, spilakvöld og fleira. Félagsmenn geta leigt salinn til einkanota gegn vægu gjaldi. Upplýsingar um leigu á salnum er hægt að nálgast hjá formanni.
Það kostar 200 krónur að leigja Loftið. Það þarf að leggja fram tryggingu að upphæð 300 krónur.
Ef um barnaafmæli er að ræða eða fund þá kostar húsið 100 krónur.
Það er nýbúið að skipta út stólum og borðum. Það eru sæti fyrir 30, en svo ertu líka til borð og stólar sem hægt er að setja upp.Það eru til dúkar í nokkrum litum sem fylgja leigunni, en skila þarf þeim hreinum.
Nýlega voru keypt ný eldhús áhöld, sem eru til afnota fyrir þá sem leigja húsið. Það eru til flest öll borðáhöld sem þarf að nota.
Hægt er að gera salin mjög kósý, og raða upp á ýmsan hátt.
Það eru til staðar magnari og hátalarar sem hægt er að tengja Ipod, mp3 eða cd spilara við.
Mígrafóna er hægt að leigja.
Við eigum líka skjávarpa sem hægt er að leigja.
Eins eigum við partý tjald sem hægt er að leigja. Stærðin á tjaldinu er 5x8.

